Þá getum við ekki leyft okkur þetta

Snorri Steinn Guðjónsson fylgist með á hliðarlínunni í Laugardalshöllinni í …
Snorri Steinn Guðjónsson fylgist með á hliðarlínunni í Laugardalshöllinni í dag. Ljósmynd/Kristinn Steinn

Snorri Steinn Guðjóns­son, landsliðsþjálf­ari karlaliðs Íslands í hand­bolta, var ánægður með frammistöðu liðsins gegn Georgíu í dag en Ísland vann 33:21 í loka­leikn­um í undan­keppni EM í Laug­ar­dals­höll­inni.

Spurður út í hvort liðið hafi staðið und­ir hans vænt­ing­um í dag sagði Snorri:

„Já, já. Við för­um ekk­ert að rýna of mikið í þenn­an leik. Þeir voru laskaðir og komn­ir áfram. Við bún­ir að vinna riðil­inn. Það sem ég tek út úr þessu er ein­beit­ing­in og fókus­inn hjá strák­un­um. Ég er bú­inn að kalla eft­ir þessu í þess­ari undan­keppni, bæði hér heima og á úti­völl­un­um.

Í öll­um leikj­un­um nema kannski í fyrsta leikn­um á móti Bosn­íu höf­um við byrjað gríðarlega sterkt. Ég skynja bara að menn mæta ein­beitt­ir í þessi verk­efni. Það er kúnst í þess­um undan­keppn­um þegar æf­ing­arn­ar eru fáar og tím­inn naum­ur sem við fáum sam­an."

Var ekk­ert erfitt að gíra liðið upp í þessa tvo leiki í þess­um glugga í ljósi þess að ís­lenska liðið hafði í raun ekki að neinu að keppa?

„Ég velti því aðeins fyr­ir mér fyr­ir fram. Síðan bara upp­lifði ég það að menn mættu klár­ir og ein­beitt­ir. Þeir vilja þetta. Það er aldrei vesen að kalla þessa stráka í landsliðið. Al­veg sama hvað er í gangi hjá þeirra fé­lagsliðum.

Núna er mikið und­ir hjá mörg­um af þeirra fé­lagsliðum en það skipt­ir engu máli, þeir eru alltaf til­bún­ir þegar kallið kem­ur. Æfing­arn­ar voru góðar og þess­ir strák­ar gerðu þetta eins og sann­ir landsliðsmenn eiga að gera þetta.“

Núna er þessu verk­efni lokið. Hvað er núna fram und­an hjá þér sem þjálf­ara og svo landsliðinu?

Þorsteinn Leó Gunnarsson skýtur að marki Georgíu í dag.
Þor­steinn Leó Gunn­ars­son skýt­ur að marki Georgíu í dag. Ljós­mynd/​Krist­inn Steinn

„Það er ekki gluggi fyrr en í októ­ber/​nóv­em­ber. Þess­ir strák­ar fara núna bara aft­ur í sín fé­lagslið og taka loka­sprett­inn með þeim. Síðan von­andi taka þeir gott sum­ar­frí.

Fyr­ir mína parta þá er bara um margt að hugsa. Þú ert mikið að velta fyr­ir þér á þess­um tíma­punkti. Við fór­um inn í þenn­an riðil með það að sjón­ar­miði að prófa hluti. Sjá aðeins hvað við vilj­um gera þegar kem­ur að mót­inu í janú­ar. Þegar þangað er komið þá ertu ekki að prófa hluti. Við þurf­um að velja og hafna hvað hent­ar okk­ur og hent­ar okk­ur ekki. Við höf­um þenn­an eina glugga í lok októ­ber.

Auðvitað vit­um við ekk­ert hverj­ir verða heil­ir og allt það. Það seg­ir sig sjálft að sá gluggi verður mjög mik­il­væg­ur þar sem það verður síðasti glugg­inn fyr­ir EM."

Eitt­hvað sem öskr­ar á þig að hefði mátt fara bet­ur í leik liðsins í þess­um glugga sem er að klár­ast?

„Já, ég er óánægður með nýt­ing­una á dauðafær­um. Þau eru bara of mörg og þau hafa áður orðið okk­ur að falli. Menn þurfa bara að nota fær­in bet­ur. Við fáum gríðarlegt magn af þeim í dag. Kannski var smá ein­beit­ing­ar­leysi því leik­ur­inn var í raun bú­inn en það skipt­ir ekki máli. Við erum ekki að spila á móti bestu markvörðum í heimi, með fullri virðingu fyr­ir þeim. Þetta þarf að verða betra.

Við höf­um talað um það og ég hef farið oft áður yfir það því þegar á hólm­inn er komið og við spil­um við bestu liðin þá get­um við ekki leyft okk­ur þetta,“ sagði Snorri Steinn í sam­tali við mbl.is.

mbl.is

Handbolti

Meira
L U J T Mörk +/- Stig
1 Ísland 6 6 0 0 196:143 53 12
2 Georgía 6 3 0 3 151:162 -11 6
3 Grikkland 6 2 0 4 151:168 -17 4
4 Bosnía 6 1 0 5 143:168 -25 2
11.05 Grikkland 30:23 Bosnía
11.05 Ísland 33:21 Georgía
08.05 Georgía 29:26 Grikkland
07.05 Bosnía 25:34 Ísland
16.03 Bosnía 20:22 Georgía
15.03 Ísland 33:21 Grikkland
13.03 Georgía 28:26 Bosnía
12.03 Grikkland 25:34 Ísland
10.11 Bosnía 23:22 Grikkland
10.11 Georgía 25:30 Ísland
06.11 Ísland 32:26 Bosnía
06.11 Grikkland 27:26 Georgía
urslit.net
Fleira áhugavert

Handbolti

Meira
L U J T Mörk +/- Stig
1 Ísland 6 6 0 0 196:143 53 12
2 Georgía 6 3 0 3 151:162 -11 6
3 Grikkland 6 2 0 4 151:168 -17 4
4 Bosnía 6 1 0 5 143:168 -25 2
11.05 Grikkland 30:23 Bosnía
11.05 Ísland 33:21 Georgía
08.05 Georgía 29:26 Grikkland
07.05 Bosnía 25:34 Ísland
16.03 Bosnía 20:22 Georgía
15.03 Ísland 33:21 Grikkland
13.03 Georgía 28:26 Bosnía
12.03 Grikkland 25:34 Ísland
10.11 Bosnía 23:22 Grikkland
10.11 Georgía 25:30 Ísland
06.11 Ísland 32:26 Bosnía
06.11 Grikkland 27:26 Georgía
urslit.net
Fleira áhugavert