Ívar Logi Styrmisson átti flottan leik er Fram sigraði Val, 37:33, í fyrsta leik liðanna í úrslitum Íslandsmótsins í handbolta á Hlíðarenda í kvöld.
Fram náði mest sjö marka forskoti í seinni hálfleik, áður en Valur minnkaði muninn í eitt mark þegar skammt var eftir. Framarar voru hins vegar sterkari í blálokin.
„Það var mikið hikst á okkur en mér leið þægilega. Við vorum komnir með flott forskot og við vissum að þeir kæmu á okkur. Ég er ánægður með hvernig við stóðumst þetta.
Sóknarleikurinn okkar var góður. Það voru ansi margar sóknir í þessum hraða leik. Vörnin var ágæt í seinni hálfleik. Vörnin og markvarslan, klassíska blandan,“ sagði Ívar.
Ívar og aðrir leikmenn beggja liða þurftu að bíða í rúmar tvær vikur eftir þessu einvígi vegna landsliðspásunnar.
„Þetta er smá skrítið. Ég er eiginlega ekki meðvitaður um að þetta sé að fara í gang. Það kom ekki fyrr en í dag. Maður þurfti að vera snöggur að gera sig tilbúinn,“ sagði hann.
Reynir Þór Stefánsson var markahæstur hjá Fram í leiknum með tólf mörk, fjórum dögum eftir að hann lék sinn fyrsta A-landsleik.
„Maður fær gæsahúð við að tala um hann. Þótt hann sé ekki atvinnumaður hérna þá hagar hann sér eins og atvinnumaður í öllu. Við setjum ábyrgð á hann og hann á okkur, því hann er með standarda. Það hefur verið geggjað að sjá hann taka þessi skref,“ sagði hann.
Ívar kom til Fram árið 2022 og höfðu Framarar þá ekki verið líklegir til að vinna titla síðustu ár og ekki fyrstu ár Ívars heldur. Annað er uppi á teningnum í ár, en Fram er ekki aðeins yfir í úrslitum, heldur einnig bikarmeistari.
„Ég sá það ekki fyrsta árið en annað árið, þegar ungu strákarnir eins og Reynir og Marel koma upp, sá maður að það voru miklir hæfileikar í liðinu. Við vorum flengdir gegn Val í átta liða úrslitum í fyrra og vorum nokkrum númerum of litlir. Við nýttum sumarið vel eftir það.“
Fleiri Framarar voru í stúkunni í kvöld, þrátt fyrir að vera gestaliðið. „Mér leið eins og við værum á heimavelli. Ég bjóst við fleiri Völsurum. Þetta var heimavöllurinn okkar í dag,“ sagði Ívar.