Markaregn í tveimur Íslendingaslögum

Ómar Ingi Magnússon og Gísli Þorgeir Kristjánsson í leik með …
Ómar Ingi Magnússon og Gísli Þorgeir Kristjánsson í leik með Magdeburg. Ljósmynd/Aleksandar Djorovic

Fjöldi ís­lenskra leik­manna lét vel að sér kveða í þýsku 1. deild­inni í hand­knatt­leik karla í kvöld. Alls litu 27 ís­lensk mörk dags­ins ljós í tveim­ur Íslend­ingaslög­um.

Ómar Ingi Magnús­son skoraði sex mörk og lagði upp fjög­ur þegar Mag­deburg lagði læri­sveina Guðjóns Vals Sig­urðsson­ar í Gum­mers­bach að velli, 32:31.

Gísli Þor­geir Kristjáns­son bætti við þrem­ur mörk­um og þrem­ur stoðsend­ing­um.

Teit­ur Örn Ein­ars­son var öfl­ug­ur í liði Gum­mers­bach með fjög­ur mörk og tvær stoðsend­ing­ar og Elliði Snær Viðars­son bætti við tveim­ur.

Mag­deburg er í þriðja sæti með 43 stig, þrem­ur á eft­ir efstu liðum en á leik til góða. Gum­mers­bach er í ní­unda sæti með 30 stig.

Skoruðu báðir sex mörk

Ekki létu Íslend­ing­arn­ir sitt eft­ir liggja þegar læri­svein­ar Rún­ars Sig­trygg­son­ar í Leipzig vann Erlangen 23:21.

Andri Már Rún­ars­son, son­ur Rún­ars, skoraði sex mörk fyr­ir Leipzig.

Viggó Kristjáns­son gerði slíkt hið sama fyr­ir Erlangen gegn sín­um gömlu fé­lög­um í Leipzig. Gaf hann auk þess eina stoðsend­ingu.

Leipzig er í 12. sæti með 21 stig og Erlangen er í 16. sæti með 12 stig, tveim­ur fyr­ir ofan fallsæti.

mbl.is

Handbolti

Meira
L U J T Mörk +/- Stig
1 Ísland 6 6 0 0 196:143 53 12
2 Georgía 6 3 0 3 151:162 -11 6
3 Grikkland 6 2 0 4 151:168 -17 4
4 Bosnía 6 1 0 5 143:168 -25 2
11.05 Grikkland 30:23 Bosnía
11.05 Ísland 33:21 Georgía
08.05 Georgía 29:26 Grikkland
07.05 Bosnía 25:34 Ísland
16.03 Bosnía 20:22 Georgía
15.03 Ísland 33:21 Grikkland
13.03 Georgía 28:26 Bosnía
12.03 Grikkland 25:34 Ísland
10.11 Bosnía 23:22 Grikkland
10.11 Georgía 25:30 Ísland
06.11 Ísland 32:26 Bosnía
06.11 Grikkland 27:26 Georgía
urslit.net
Fleira áhugavert

Handbolti

Meira
L U J T Mörk +/- Stig
1 Ísland 6 6 0 0 196:143 53 12
2 Georgía 6 3 0 3 151:162 -11 6
3 Grikkland 6 2 0 4 151:168 -17 4
4 Bosnía 6 1 0 5 143:168 -25 2
11.05 Grikkland 30:23 Bosnía
11.05 Ísland 33:21 Georgía
08.05 Georgía 29:26 Grikkland
07.05 Bosnía 25:34 Ísland
16.03 Bosnía 20:22 Georgía
15.03 Ísland 33:21 Grikkland
13.03 Georgía 28:26 Bosnía
12.03 Grikkland 25:34 Ísland
10.11 Bosnía 23:22 Grikkland
10.11 Georgía 25:30 Ísland
06.11 Ísland 32:26 Bosnía
06.11 Grikkland 27:26 Georgía
urslit.net
Fleira áhugavert