Ætlum að lyfta bikarnum á fimmtudag

Einar Jónsson á hliðarlínunni í dag.
Einar Jónsson á hliðarlínunni í dag. Ljósmynd/Kristinn Steinn

Ein­ar Jóns­son þjálf­ari Fram var hæst ánægður með eins marks sig­ur á Val í öðrum leik liðanna í úr­slita­ein­víg­inu um Íslands­meist­ara­titil karla í hand­bolta í kvöld.

Fram get­ur því tryggt sér titil­inn með því að vinna Val á Hlíðar­enda næsta fimmtu­dag. Mbl.is ræddi við Ein­ar strax eft­ir leik og byrjaði spurn­ing­arn­ar á létt­um nót­um.

Þínir menn eru ein­um sigri frá því að verða Íslands­meist­ar­ar líkt og þú hef­ur ít­rekað lofað þínum stuðnings­mönn­um í vet­ur. Á meðan Val­ur þarf þrjá sigra þá þarf Fram bara einn. Þú virðist ætla að ná að standa við gefið lof­orð?

„Ég get ekki lofað neinu en það var stefn­an og er stefn­an og mark­miðið," sagði Ein­ar hlæj­andi og hélt síðan áfram:

„Það er eig­in­lega ótrú­legt að við höf­um unnið þenn­an leik. Það var Björg­vin Páll og tveir aðrir sem héldu Vals­mönn­um inni í leikn­um. Þetta var á tíma­bili bara al­gjör bil­un að horfa á. Ég er bara gríðarlega ánægður með mína menn að hafa unnið þenn­an leik, bara geggjað.“

Breki Hrafn Árnason lék vel í markinu.
Breki Hrafn Árna­son lék vel í mark­inu. Ljós­mynd/​Krist­inn Steinn

„Má samt ekki segja að þetta hafi að ein­hverju leyti verið leik­ur markv­arðanna þar sem Björg­vin Páll ver 16 skot, Arn­ór ver 9 skot og Breki ver 8 skot?

„Jú, markvarsl­an var góð hjá okk­ur og vörn­in frá­bær. Björg­vin var að hirða mikið af dauðafær­um hjá okk­ur. Það var hel­víti blóðugt. Við erum samt að fá okk­ur enda­laust af tveim­ur mín­út­um á sama tíma og það eru ljót brot hinum meg­in og lítið dæmt. En mér fannst Bjöggi og tveir aðrir halda þeim inni í þessu í kvöld.“

Vals­menn eru bún­ir að skora 5 mörk þegar 20 mín­út­ur eru liðnar af seinni hálfleik. Það hlýt­ur að vera gæðastimp­ill á vörn og markvörslu Fram í kvöld?

„Já, al­gjör­lega. Vörn­in var góð. Breki var síðan frá­bær í upp­hafi seinni hálfleiks og lokaði mark­inu á tíma­bili. Það er á þeim tíma sem við erum að byggja upp okk­ar for­skot. Þetta er auðvitað kafla­skipt að ein­hverju leyti. Við unn­um þetta og það er það sem skipt­ir máli."

Haf­andi séð ein­vígi Fram gegn FH og svo það sem er búið í þess­um leikj­um við Val þá virðist votta fyr­ir smá meist­ara­brag á liði Fram. Ertu sam­mála því?

„Það eru þín orð. Jú jú, við ætl­um okk­ur að verða meist­ar­ar. Það er góð ára yfir þessu liði. Okk­ur líður vel, okk­ur finnst gam­an og við höf­um allt til þess að verða Íslands­meist­ar­ar. Við þurf­um samt að vinna einn leik í viðbót og þá lyft­um við þess­um bik­ar. Við ætl­um okk­ur að gera það. Hvernig sem við ger­um það skipt­ir ekki máli.“

Er ekki fyrsta mark­miðið að gera at­lögu að því að lyfta bik­arn­um á Hlíðar­enda næsta fimmtu­dag?

„Jú, við för­um í alla leiki til að vinna og ætl­um okk­ur klár­lega að gera það á fimmtu­dag. Við vit­um að það verður erfitt al­veg eins og þess­ir fyrstu tveir leik­ir voru erfiðir. Þriðji leik­ur­inn verður drullu­erfiður. Þú færð ekk­ert nema ein­hver týpísk svör frá mér. Við ætl­um að lyfta bik­arn­um á fimmtu­dag.“

Hvað þarf til að vinna titil­inn á fimmtu­dag­inn til viðbót­ar við frammistöðuna í kvöld?

„Við þurf­um bara að spila okk­ar leik til viðbót­ar við um­gjörðina sem við höf­um ekki stjórn á en þarf að vera í lagi. Ef við spil­um okk­ar leik og um­gjörðin verður í lagi þá er þetta 50/​50 mögu­leiki fyr­ir okk­ur,“ sagði Ein­ar í sam­tali við mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert