Íslendingaliðin unnu - Gísli og Ómar í stuði

Gísli Þorgeir Kristjánsson var með átta mörk og tvær stoðsendingar …
Gísli Þorgeir Kristjánsson var með átta mörk og tvær stoðsendingar í kvöld. mbl.is/Eyþór

Íslend­ingaliðin Melsungen og Mag­deburg styrktu stöðu sína í bar­átt­unni um þýska meist­ara­titil­inn í hand­knatt­leik með sigr­um í kvöld og spenn­an er mik­il fyr­ir lokaum­ferðirn­ar.

Füch­se Berlín og Melsungen eru jöfn á toppn­um með 50 stig og Mag­deburg er með 45 stig í þriðja sæt­inu og á tvo leiki til góða á efstu liðin.

Kiel er síðan með 44 stig og Hanno­ver-Burgdorf 43 og blanda sér ekki í meist­ara­bar­átt­una úr þessu en fjór­um um­ferðum er ólokið.

Gísli Þor­geir Kristjáns­son og Ómar Ingi Magnús­son voru í mikl­um ham þegar Mag­deburg fékk Hanno­ver-Burgdorf í heim­sókn í stór­leik kvölds­ins og vann 34:28.

Þeir komu að 20 mörk­um fyr­ir Mag­deburg en Gísli skoraði 8 mörk og átti tvær stoðsend­ing­ar og Ómar skoraði 7 mörk og átti þrjár stoðsend­ing­ar.

Melsungen vann auðveld­an sig­ur á Wetzl­ar, 33:27, eft­ir að staðan var 20:10 í hálfleik. Elv­ar Örn Jóns­son skoraði 5 mörk fyr­ir Melsungen og Arn­ar Freyr Arn­ars­son 4.

Andri Már Rún­ars­son átti góðan leik með Leipzig sem tapaði 29:25 á heima­velli gegn Hamburg. Andri skoraði sex mörk og átti þrjár stoðsend­ing­ar.

Ýmir Örn Gísla­son skoraði ekki en var rek­inn einu sinn af velli þegar Göpp­ingen stein­lá fyr­ir Füch­se Berlín á heima­velli, 43:28.

mbl.is

Handbolti

Meira
L U J T Mörk +/- Stig
1 Ísland 6 6 0 0 196:143 53 12
2 Georgía 6 3 0 3 151:162 -11 6
3 Grikkland 6 2 0 4 151:168 -17 4
4 Bosnía 6 1 0 5 143:168 -25 2
11.05 Grikkland 30:23 Bosnía
11.05 Ísland 33:21 Georgía
08.05 Georgía 29:26 Grikkland
07.05 Bosnía 25:34 Ísland
16.03 Bosnía 20:22 Georgía
15.03 Ísland 33:21 Grikkland
13.03 Georgía 28:26 Bosnía
12.03 Grikkland 25:34 Ísland
10.11 Bosnía 23:22 Grikkland
10.11 Georgía 25:30 Ísland
06.11 Ísland 32:26 Bosnía
06.11 Grikkland 27:26 Georgía
urslit.net
Fleira áhugavert

Handbolti

Meira
L U J T Mörk +/- Stig
1 Ísland 6 6 0 0 196:143 53 12
2 Georgía 6 3 0 3 151:162 -11 6
3 Grikkland 6 2 0 4 151:168 -17 4
4 Bosnía 6 1 0 5 143:168 -25 2
11.05 Grikkland 30:23 Bosnía
11.05 Ísland 33:21 Georgía
08.05 Georgía 29:26 Grikkland
07.05 Bosnía 25:34 Ísland
16.03 Bosnía 20:22 Georgía
15.03 Ísland 33:21 Grikkland
13.03 Georgía 28:26 Bosnía
12.03 Grikkland 25:34 Ísland
10.11 Bosnía 23:22 Grikkland
10.11 Georgía 25:30 Ísland
06.11 Ísland 32:26 Bosnía
06.11 Grikkland 27:26 Georgía
urslit.net
Fleira áhugavert