Mikið spennufall eftir Evróputitilinn

Ágúst ræðir við sitt lið í kvöld.
Ágúst ræðir við sitt lið í kvöld. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ágúst Jó­hanns­son, þjálf­ari nýkrýndra Evr­ópu­bikar­meist­ara Vals í hand­bolta, var ánægður með frammistöðu síns liðs í kvöld sem vann Hauka í fyrsta leik liðanna í úr­slitaviður­eign þeirra um Íslands­meist­ara­titil kvenna í hand­bolta. Hann sagði þetta þegar hann var spurður út í leik­inn og spila­mennsku Vals í kvöld:

„Stelp­urn­ar voru orku­mikl­ar í dag. Ég hafði áhyggj­ur af því hvernig þær kæmu til leiks því það er mikið spennu­fall eft­ir að hafa unnið Evr­ópu­titil á laug­ar­dag. Ég svo sem vissi ekk­ert hvernig mitt lið kæmi inn í leik­inn í kvöld.

Þetta eru fag­menn fram í fing­ur­góma og þær mættu hér og sýndu hvað þær geta. Við vor­um í fríi á sunnu­dag­inn og funduðum stutt­lega í gær og tók­um stutta æf­ingu. Ég er bara ánægður með viðmótið í liðið og hvernig þær mættu til leiks í kvöld.“

Þegar Lovísa Thomp­son fær rautt spjald í seinni hálfleik þá bjóst maður mögu­lega við há­spennu­leik í kjöl­farið sem myndi hugs­an­lega enda í fram­leng­ingu. Að sama skapi beið maður eft­ir þreytu­merkj­um í Valsliðinu. Hvor­ugt gerðist og Valskon­ur juku bara mun­inn í kjöl­farið. Hvernig nærðu svona ár­angri út úr þessu liði?

„Ég var alltaf stressaður fyr­ir þessu því Hauk­ar eru mikið hraðaupp­hlaupslið og keyra oft upp tempóið. Ég beið alltaf eft­ir ein­hverju áhlaupi frá þeim. Við náðum að rúlla liðinu okk­ar vel og byrjuðum fyrr á því í kvöld. Auðvitað var þetta bara einn leik­ur sem gekk vel og við spiluðum sann­fær­andi í kvöld.

Hauk­arn­ir eru samt með rosa­lega gott lið og við erum að fara mjög erfiðan leik á föstu­dag.“

Hvað þarf til að fylgja þess­um sigri eft­ir með öðrum sigri á föstu­dag?

„Núna verður liðið að hvíla sig vel. Það eina sem við get­um gert er að safna orku fyr­ir föstu­dag því leik­ur­inn þá verður enn þá meiri bar­átta og enn þá meira stríð,“ sagði Ágúst í sam­tali við mbl.is.

mbl.is

Handbolti

Meira
L U J T Mörk +/- Stig
1 Ísland 6 6 0 0 196:143 53 12
2 Georgía 6 3 0 3 151:162 -11 6
3 Grikkland 6 2 0 4 151:168 -17 4
4 Bosnía 6 1 0 5 143:168 -25 2
11.05 Grikkland 30:23 Bosnía
11.05 Ísland 33:21 Georgía
08.05 Georgía 29:26 Grikkland
07.05 Bosnía 25:34 Ísland
16.03 Bosnía 20:22 Georgía
15.03 Ísland 33:21 Grikkland
13.03 Georgía 28:26 Bosnía
12.03 Grikkland 25:34 Ísland
10.11 Bosnía 23:22 Grikkland
10.11 Georgía 25:30 Ísland
06.11 Ísland 32:26 Bosnía
06.11 Grikkland 27:26 Georgía
urslit.net
Fleira áhugavert

Handbolti

Meira
L U J T Mörk +/- Stig
1 Ísland 6 6 0 0 196:143 53 12
2 Georgía 6 3 0 3 151:162 -11 6
3 Grikkland 6 2 0 4 151:168 -17 4
4 Bosnía 6 1 0 5 143:168 -25 2
11.05 Grikkland 30:23 Bosnía
11.05 Ísland 33:21 Georgía
08.05 Georgía 29:26 Grikkland
07.05 Bosnía 25:34 Ísland
16.03 Bosnía 20:22 Georgía
15.03 Ísland 33:21 Grikkland
13.03 Georgía 28:26 Bosnía
12.03 Grikkland 25:34 Ísland
10.11 Bosnía 23:22 Grikkland
10.11 Georgía 25:30 Ísland
06.11 Ísland 32:26 Bosnía
06.11 Grikkland 27:26 Georgía
urslit.net
Fleira áhugavert