Það var hress og kátur Ívar Logi Styrmisson sem mætti í viðtal hjá mbl.is strax eftir verðlaunaafhendingu í kvöld. Lið hans Fram varð í kvöld Íslandsmeistari karla í handbolta eftir sigur á Val og samtals 3:0 í einvíginu. Styrmir hafði þetta að segja spurður út í þær tilfinningar sem brytust um í honum:
„Ég er eiginlega bara orðlaus. Ég var með góða tilfinningu fyrir leik. Okkur leið vel og vorum búnir að læra af þriðja leiknum á móti FH í undanúrslitunum. Mér leið vel og fannst eins og hópurinn væri að fara vinna þetta.
Síðan bara er þessi leikur og ég gæti ekki sagt þér eitt atriði úr honum því ég var bara í einhvers konar blörri.“
Þannig að þú spilaðir þennan leik í svokölluðu black-outi?
„Já, ekki í þessu hefðbundna en klárlega í svona andlegu black-outi, já,“ sagði Ívar Logi hlæjandi og hélt síðan áfram: „Frábær innkoma hjá Theodóri og hann stóð sig bara frábærlega og bara allt liðið.
Við tókum ákvörðun síðasta sumar um að bæta okkur gríðarlega og byrjuðum að æfa gríðarlega snemma. Við tókum þetta síðasta sumar bara í nefið.“
Þið sem sagt settuð ykkur háleit markmið fyrir þetta tímabil?
„Já, og við vorum bara frekar opnir með það við fólkið í kringum okkur og okkar stuðningsmenn. Við sögðum bara að við ætluðum að stefna á alla titlana. Við náðum tveimur af þremur. Geggjað að ná markmiðunum sínum.“
Íslandsmeistaratitillinn er ykkar og nú tekur við sumarfrí. Verða einhverjar breytingar hjá þér fyrir næsta tímabil?
„Engar breytingar hjá mér. Ég er enn þá með samning. Við erum að missa Reyni Þór og Tryggva held ég. En við erum með mikið af ungum gæjum sem eru ekki komnir í hópinn þannig að það er mikill efniviður. Þannig að við eigum alveg að geta fylgt þessu eftir og gert Fram aftur að stórveldinu sem það var í handbolta,“ sagði Ívar Logi í samtali við mbl.is