Lovísa Thompson, leikmaður Vals, var ánægð með sjö marka sigur liðsins gegn Haukum í kvöld, 29:22, í einvíginu um um Íslandsmeistaratitil kvenna í handbolta
„Fyrri hálfleikurinn var ekki nógu góður af okkar hálfu. Mér fannst við frekar flatar andlega en ég er mjög ánægð með hvernig við mættum í seinni hálfleikinn, með kassann út og ætluðum að gera betur og við náðum því svo ég er ánægð,“ sagði Lovísa í viðtali við mbl.is eftir leikinn.
Haukar voru yfir í fyrri hálfleik en Valsarar tóku yfir í seinni og voru með mikla yfirburði.
„Við ætluðum að spila þéttari og betri vörn í seinni. Þá fáum við Hafdísi í gang með og það munar öllu. Þegar stemningin kemur í vörnina þá er allt hægt.
Hafdís er geggjuð og við náum að hjálpa henni rosalega mikið. Hún er stemningamarkmaður og það er líka ótrúlega geggjað þegar hún nær þessum dauðafærum, það lyftir okkur upp á hærra plan og það er mjög gott að eiga góðan markmann,“ sagði Lovísa.
Lovísa var ein af markahæstu leikmönnum Vals í kvöld með átta mörk. Hún var einnig ein af markahæstu leikmönnum í Val í síðasta leik og skoraði sex mörk áður en hún fékk rautt spjald.
„Mér líður vel í þessari úrslitakeppni. Þegar ég er áræðin og sæki á markið þá gengur oft eitthvað upp en um leið og ég hika þá er ég svolítið fljót í að tapa boltanum eða eitthvað svoleiðis svo það er bara ein leið áfram og það er að sækja á markið.
Ég er líka með góða liðsfélaga og við vorum flestallar að fara beint á rammann og það munar mjög miklu. Þá getum við hjálpast að við að ná boltanum í markið. Ég er mjög ánægð með liðið í dag.“
Valur þarf aðeins einn sigur í viðbót til að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn.
„Við þurfum að núllstilla okkur fyrir næsta leik. Haukarnir koma brjálaðir og við þurfum að halda áfram að gera okkar frammistöðu góða. Við vorum ekki sáttar með fyrri hálfleikinn í kvöld en náðum að bæta upp fyrir það í seinni hálfleik. Ef við sýnum góða frammistöðu þá gengur vel en það er nýr leikur og ný tækifæri. Við þurfum að núllstilla okkur og mæta á fullu þá.“