Heiðruðu þrjá dómara

Guðjón L. Sigurðsson, Ólafur Örn Haraldsson og Gísli Hlynur Jóhannsson …
Guðjón L. Sigurðsson, Ólafur Örn Haraldsson og Gísli Hlynur Jóhannsson með viðurkenningar sínar. Ljósmynd/HDSÍ

Hand­knatt­leiks­dóm­ara­fé­lag Íslands heiðraði ný­verið þrjá dóm­ara fyr­ir störf sín í þágu hand­knatt­leiks­dómgæslu á Íslandi.

Á aðal­fundi HDSÍ voru þeim Gísli Hlyn­ur Jó­hanns­son, Ólaf­ur Har­alds­son og Guðjón L. Sig­urðsson veitt heiðurs­merki fé­lags­ins.

Þá viður­kenn­ingu hafði aðeins Kjart­an Stein­back, fyrr­ver­andi formaður dóm­ara­nefnd­ar IHF, hlotið á und­an þeim.

Nán­ar um þre­menn­ing­ana:

Gísli Hlyn­ur Jó­hanns­son

Gísli hef­ur starfað sem dóm­ari hjá HSÍ síðan árið 1982. Var hann að ásamt fé­laga sín­um Haf­steini Ingi­bergs­syni allt til árs­ins 2016 eða í 34 ár. Á þess­um árum dæmdi Gísli um 1.700 hand­knatt­leiks­leiki á veg­um HSÍ í öll­um flokk­um þó að mestu í efstu deild­um karla og kvenna. Á ferl­in­um dæmdi hann sex bikar­úr­slita­leiki.

Einnig hef­ur Gísli fengið að njóta þess heiðurs að dæma á fjór­um Special Olympics í fjór­um lönd­um.

Gísli Hlyn­ur hef­ur starfað mikið á bak við tjöld­in í starfi dóm­ara á Íslandi og hef­ur setið m.a. í dóm­ara­nefnd HSÍ og verið formaður HDSÍ. Auk þessa hef­ur hann sinnt fræðslu­mál­um á Suður­nesj­um um dóm­ara­mál.

Ólaf­ur Örn Har­alds­son

Ólaf­ur Har­alds­son hef­ur starfað sem dóm­ari hjá HSÍ síðan árið 1976. Dæmdi hann í fram­hald­inu með Stefáni Arn­alds­syni til árs­ins 1989 og tóku þeir fé­lag­ar IHF-próf sitt í janú­ar 1989. Haustið það ár fór Ólaf­ur til Nor­egs og dæmdi hann þar til árs­ins 1995.

Á árum sín­um í Nor­egi dæmdi Ólaf­ur nokkra leiki ásamt Óla Ólsen og Gunn­ari Kjart­ans­syni í EHF-keppn­um. Við heim­komu árið 1995 hóf Ólaf­ur að dæma með Gunn­ar Kjart­ans­syni en tók svo að dæma með Guðjóni L Sig­urðssyni frá ár­inu 1998. Guðjón og Ólaf­ur dæmdu svo sam­an til árs­ins 2005 þegar Ólaf­ur lagði flaut­una á hill­una.

Frá ár­inu 2007 hef­ur Ólaf­ur sinnt eft­ir­liti á leikj­um á veg­um HSÍ og frá vor­inu 2008 einnig á veg­um EHF.

Ólaf­ur hef­ur setið í dóm­ara­nefnd HSÍ og nú síðasta árið gegndi hann for­mennsku í þeirri nefnd.

Guðjón L. Sig­urðsson

Guðjón hef­ur starfað sem dóm­ari frá ár­inu 1972. Fyrstu ár sín í dómgæslu dæmdi hann með Jóni Her­manns­syni en dæmdi síðar með Aðal­steini Örn­ólfs­syni.

Á þess­um árum hef­ur Guðjón dæmt marga af stór­leikj­um ís­lensks hand­bolta og þar má nefna fjöl­marga úr­slita­leiki í Íslands­mót­um og bik­ar­keppni HSÍ.

Guðjón varð IHF-dóm­ari árið 1990 og síðar EHF-dóm­ari frá ár­inu 1993. Dæmdi hann sem slík­ur til árs­ins 2005 þegar hann og Ólaf­ur fé­lagi hans lögðu flaut­urn­ar á hill­una.

Að ferl­in­um lokn­um hef­ur Guðjón sinnt starfi eft­ir­lits­manns hjá EHF, þar sem hætti síðasta haust sök­um ald­urs.

Frá þeim tíma þegar Guðjón hætti störf­um sem dóm­ari starfaði hann öt­ul­lega að þróun hand­knatt­leiks­dómgæslu á Íslandi. Hann hef­ur setið í dóm­ara­nefnd HSÍ og sinnt for­mennsku þeirra nefnd­ar með hlé­um frá ár­inu 2007.

mbl.is

Handbolti

Meira
L U J T Mörk +/- Stig
1 Ísland 6 6 0 0 196:143 53 12
2 Georgía 6 3 0 3 151:162 -11 6
3 Grikkland 6 2 0 4 151:168 -17 4
4 Bosnía 6 1 0 5 143:168 -25 2
11.05 Grikkland 30:23 Bosnía
11.05 Ísland 33:21 Georgía
08.05 Georgía 29:26 Grikkland
07.05 Bosnía 25:34 Ísland
16.03 Bosnía 20:22 Georgía
15.03 Ísland 33:21 Grikkland
13.03 Georgía 28:26 Bosnía
12.03 Grikkland 25:34 Ísland
10.11 Bosnía 23:22 Grikkland
10.11 Georgía 25:30 Ísland
06.11 Ísland 32:26 Bosnía
06.11 Grikkland 27:26 Georgía
urslit.net
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert