Jakob Svavar Sigurðsson og Kór frá Skálakoti standa efstir eftir spennandi forkeppni í B-flokki með 8,89 í einkunn.
Jafnir í öðru sæti með 8,86 í einkunn eru Hlynur Guðmundsson á Trommu frá Höfn og Helgi Þór Guðjónsson með Þröst frá Kolsholti 2. Þriðju, og einnig jöfn, eru Arnhildur Helgadóttir á Völu frá Hjarðartúni og Sigurður Sigurðarson á Rauðu-List frá Þjóðólfshaga með 8,81.
Alls 114 knapar voru skráðir til leiks í B-flokki og komast efstu 30 áfram í milliriðill. Mjótt er á milli efstu keppenda og mega áhorfendur vænta spennandi keppni í milliriðlinum á fimmtudaginn.