Gæðingaveisla í rigningunni

Þrátt fyrir spennu á vellinum hafði það ekki áhrif á …
Þrátt fyrir spennu á vellinum hafði það ekki áhrif á blóðþrýsting allra áhorfenda. mbl.is/Árni Sæberg

Nú hef­ur ann­ar dag­ur í hesta­veislu á Lands­móti hesta­manna í Víðidal tekið enda og urðu móts­gest­ir ekki fyr­ir von­brigðum.

Ung­ling­arn­ir opnuðu dag­inn með for­keppni í ung­linga­flokki gæðinga. Þar stend­ur Ída Mekkín Hlyns­dótt­ir efst á Marín frá Lækj­ar­brekku 2 með 8,79 í ein­kunn.

A-flokk­ur­inn tók sviðið

Áhorf­end­ur í brekk­unni á Hvammsvelli fengu að njóta fremstu al­hliða gæðinga lands­ins langt fram á kvöld. For­keppni í A-flokki fór langt um­fram vænt­ing­ar móts­gesta og stefn­ir í spennuþrungna bar­áttu um topp­sætið.

Mikill fjöldi var í brekkunni í dag að fylgjast með …
Mik­ill fjöldi var í brekk­unni í dag að fylgj­ast með fremstu gæðing­um lands­ins. mbl.is/Á​rni Sæ­berg

Of­urkapp­inn Árni Björn Páls­son fer með for­yst­una inn í mill­iriðil­inn með hvorki meira né minna en 9,07 í ein­kunn á gæðings­hryss­unni Álfa­mær frá Prests­bæ. Árni tók einnig þriðja sætið á hest­in­um Seðli frá Árbæ.

Í öðru sæti með níu slétta er Eyrún Ýr Páls­dótt­ir á Leyni frá Garðshorni á Þela­mörk.

Árni Björn og Álfamær flugu í efsta sætið.
Árni Björn og Álfa­mær flugu í efsta sætið. mbl.is/Á​rni Sæ­berg
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert