Norskir fjölmiðlar fóru mikinn eftir tap Norðmanna gegn Brasilíu í E-riðli heimsmeistaramóts karla í handknattleik í Bærum í Noregi í gær.
Leiknum lauk með mjög óvæntum sigri Brasilíu, 29:26, en Norðmenn byrjuðu leikinn af krafti og komust snemma í 8:3. Staðan í hálfleik var svo 14:12, Norðmönnum í vil.
Portúgal vann öruggan sigur gegn Bandaríkjunum í hinum leik E-riðils í Bærum í gær, 30:21, og Norðmenn eru því strax komnir með bakið upp við vegg á heimavelli.
Norski miðillinn TV2 var ekki mikið að flækja hlutina í umfjöllun sinni um leikinn og var fyrirsögnin á fréttinni í einfaldari kantinum: Fíaskó!
Næsti leikur Norðmanna er gegn Bandaríkjunum á morgun og Noregur mætir svo Portúgal í lokaleik riðilsins á sunnudaginn. Í milliriðlakeppninni geta Norðmenn svo mætt Svíþjóð, Spáni, Japan og Síle, takist Norðmönnum að komast áfram í milliriðla.