Risastórt tækifæri fyrir íslenska liðið

Landsliðsþjálfarinn Snorri Steinn Guðjónsson stýrir æfingu Íslands í Zagreb í …
Landsliðsþjálfarinn Snorri Steinn Guðjónsson stýrir æfingu Íslands í Zagreb í gær. mbl.is/Eyþór

Bakvörður dagsins er oftast góður í að stilla væntingum í hóf þegar kemur að íþróttum. Hann hefur lært að það er besta leiðin til að verða ekki fyrir miklum vonbrigðum þegar á móti blæs.

Sú væntingastjórnun er aðeins erfiðari á HM karla í handbolta en fyrsti leikur Íslands er við Grænhöfðaeyjar í kvöld. Bakvörður er staddur í Zagreb og hefur undanfarna tvo daga heimsótt landsliðsmenn á liðshótelið og tekið við þá viðtöl.

Þeir hafa litið mjög vel út á æfingum og er augljóst að það eru allir að róa í sömu átt. Það eru komin fimmtán ár frá síðustu verðlaunum á stórmóti og eru flestir sammála um að það sé of langur tími.

Þrátt fyrir meiðsli sterkra leikmanna er liðið virkilega vel skipað og ekki skemmdi fyrir góður dráttur í riðil og milliriðil. Ísland sleppur við allra sterkustu lið heims í riðli og milliriðli og hefur liðið alla burði til að fara alla leið í átta liða úrslit.

Af sex leikjum sem Ísland leikur í riðlakeppnunum má tala um þrjá skyldusigra fyrir íslenska liðið. Leikirnir við Slóveníu, Króatíu og Egyptaland verða erfiðari en á góðum degi getur Ísland unnið þau öll. Ekki er lengra en ár síðan Ísland vann Króatíu á EM.

Heimsmeistaramótið í ár er einfaldlega risastórt tækifæri fyrir íslenska liðið til að fara langt. Það er kominn tími til. 

Bakvörðinn má sjá í heild sinni á íþróttasíðum Morgunblaðsins í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert