„Það er gaman að fá fleiri Íslendinga og við erum orðnir helvíti margir í klefanum. Það er alltaf fjör að hafa Íslendinga,“ sagði Sigvaldi Björn Guðjónsson, landsliðsmaður í handbolta, í samtali við mbl.is.
Sigvaldi er einn fimm Íslendinga sem leika með norska liðinu Kolstad. Þar kann hornamaðurinn afar vel við sig, þar sem hann er fyrirliði.
„Okkur fjölskyldunni líður frábærlega í Kolstad. Ég samdi við 2030 um daginn og það segir ýmislegt um hvernig okkur líður þarna. Liðið er gott og við erum að halda áfram að byggja upp gott lið og það tekur sinn tíma, kannski lengri tíma en það átti að gera.“
Kolstad varð bikarmeistari í síðasta leik Sigvalda fyrir heimsmeistaramótið. Hann mætti því í góðu skapi í landsliðsverkefnið.
„Það er alltaf gaman að vinna titla. Ég stóð mig vel þar og ég er í góðu formi. Þetta er skemmtilegt verkefni þetta heimsmeistaramót. Við erum með fjóra mjög góða hornamenn og við skiptum mínútum núna.“
Sigvaldi lék nær hverja einustu sekúndu á EM 2020 í Ungverjalandi, þar sem var mikið um forföll vegna covid. Nú skiptir hann mínútunum með Óðni Þór Ríkharðssyni.
„Þetta er betra svona, upp á líkamann að gera þá er þetta mun betra,“ sagði hann.