Ísland hafði betur gegn Argentínu, 30:21, í lokaleik sínum í milliriðli á heimsmeistaramóti karla í handbolta í Zagreb í kvöld. Íslenska liðið endar með átta stig í riðlinum.
Til að það nægi til að fara í átta liða úrslit þarf Ísland að treysta á að Egyptaland misstigi sig gegn Grænhöfðaeyjum eða að Króatíu mistekst að vinna Slóveníu í seinni leikjum dagsins.
Íslenska liðið byrjaði mjög hægt og var staðan 2:1 fyrir Argentínu á 7. mínútu. Þá jafnaði Ýmir Örn Gíslason í 2:2.
Argentínumenn voru hins vegar með forskot eftir tíu mínútur, 4:3, og íslenska liðið ekki að spila vel. Þegar fyrri hálfleikur var hálfnaður var Argentína yfir, 6:5.
Lítið gekk hjá íslenska liðinu að hrista það argentínska af sér og var staðan 9:9 þegar tíu mínútur voru eftir af fyrri hálfleiknum.
Gæði íslenska liðsins komu loks í ljós undir lok hálfleiksins og góður kafli gerði það að verkum að Ísland var fimm mörkum yfir í hálfleik, 15:10.
Fyrstu fjögur mörk seinni hálfleiks voru íslensk og komst Ísland níu mörkum yfir, 19:10. Munurinn varð síðan tíu mörk í fyrsta skipti í stöðunni 23:13. Þegar seinni hálfleikur var hálfnaður var staðan 26:16.
Var þá aðeins spurning hve stór sigurinn yrði og afar öruggur sigur Íslands varð raunin, þrátt fyrir að íslenska liðið hafi slakað aðeins á undir lokin.
Óðinn Þór Ríkharðsson var markahæstur í íslenska liðinu með sjö mörk. Viggó Kristjánsson, Orri Freyr Þorkelsson og Gísli Þorgeir Kristjánsson voru næstir með fjögur hver. Viktor Gísli Hallgrímsson varði 14 skot í íslenska markinu.