Þrátt fyrir að Ísland hafi fengið skell gegn Króatíu í síðasta leik liðsins á HM karla í handbolta eru íslenskir stuðningsmenn ekki af baki dottnir.
Þeir fjölmenntu í miðborg Zagreb í dag til að hita upp fyrir leikinn gegn Argentínu sem hefst 14.30.
Eyþór Árnason, ljósmyndari mbl.is og Morgunblaðsins, er í Zagreb og tók meðfylgjandi myndir.