Fór í óleyfi af HM

Kamil Syprzak í leik með Póllandi á HM 2025.
Kamil Syprzak í leik með Póllandi á HM 2025. AFP/Henning Bagger

Pólska handknattleikssambandið er ekki á eitt sátt við leikmanninn Kamil Syprzak eftir að hann yfirgaf herbúðir karlalandsliðsins í óleyfi þegar Pólland á enn eftir að spila einn leik á HM 2025.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá sambandinu þar sem kemur fram að Syprzak gæti átt yfir höfði sér refsingu.

Pólland mætir Bandaríkjunum í úrslitaleik Forsetabikarsins á heimsmeistaramótinu annað kvöld en línumaðurinn Syprzak, einn af lykilmönnum liðsins, verður fjarri góðu gamni í leiknum.

Sjálfur segist hann ekki hafa haft neitt rangt við. Í tilkynningu frá Syprzak segir hann að félagslið sitt París SG hafi óskað eftir því við pólska sambandið að Syprzak sneri aftur til Parísar til þess að fá aðhlynningu vegna meiðsla sem hann hefur glímt við um skeið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert