Dagur Sigurðsson og hans menn í króatíska karlalandsliðinu í handknattleik eru komnir í undanúrslit á heimsmeistaramótinu eftir dramatískan sigur á Ungverjum, 31:30, í Zagreb í kvöld.
Marin Sipic skoraði sigurmarkið úr hraðaupphlaupi þegar ein sekúnda var eftir af leiknum, eftir að Ungverjum hafði mistekist að skora úr langri sókn á lokamínútunni. Króatar skoruðu fimm síðustu mörkin og knúðu fram sigurinn af gríðarlegu harðfylgi.
Króatar mæta annað hvort Frakklandi eða Egyptlandi í undanúrslitunum á fimmtudaginn en leikur þeirra hefst klukkan 20 í kvöld.
Ungverjar voru yfir mestallan fyrri hálfleikinn en þeir komust í 10:6 og síðan 13:10. Króatar náðu hins vegar forystunni undir lok hálfleiksins, 16:15, en Ungverjar átti lokaorðið fyrir hlé, 16:16.
Sveiflurnar héldu áfram í síðari hálfleik. Króatar voru yfir, 20:19, en Ungverjar komust þá í 24:21. Króatar jöfnuðu í 24:24, en aftur kom rispa hjá ungverska liðinu sem komst í 27:24 þegar átta mínútur voru eftir.
László Bartucz markvörður var í lykilhlutverki hjá Ungverjum sem náðu síðan fjögurra marka forskoti, 29:25 og síðan 30:26.
En Króatar gáfust ekki upp, minnkuðu muninn í 30:29 þegar tæpar tvær mínútur voru til leiksloka og náðu síðan boltanum. Filip Glavas jafnaði úr vítakasti, 30:30, þegar ein mínúta var eftir.
Glavas skoraði 6 mörk fyrir Króata, Marin Sipic 5 og Zvonimir Srna 5 en Zoran Ilic var í lykilhlutverki hjá Ungverjum og skoraði 8 mörk.