Dagur: Það má alveg kalla þetta þjófnað

Dagur Sigurðsson fagnar mögnuðum sigri Króata í leikslok í Zagreb …
Dagur Sigurðsson fagnar mögnuðum sigri Króata í leikslok í Zagreb í kvöld. AFP/Anne-Christina Poujoulat

„Þetta var ótrúlegt kvöld fyrir okkur,“ sagði Dagur Sigurðsson, þjálfari karlalandsliðs Króatíu í handknattleik, þegar hann ræddi við fréttamenn eftir sigurinn magnaða á Ungverjum í átta liða úrslitum heimsmeistaramótsins í Zagreb í kvöld, 31:30.

Þetta var töfrandi kvöld, og ég vil þakka áhorfendum hérna í höllinni fyrir stuðninginn, sem og mínum leikmönnum fyrir ótrúlegan baráttuvilja. Þeir sýndu magnaðan karakter í leiknum.

Ég hafði mestar áhyggjur af því hvort við hefðum nægilegan kraft í leikinn eftir að hafa spilað tvo gríðarlega erfiða leiki í röð. Við fengum einum degi styttri hvíld en Ungverjar þannig að þeir voru ferskari og kraftmeiri að mínu mati.

En við gáfumst aldrei upp, hver einasti leikmaður fórnaði öllu sínu í leikinn og þetta var frábær leikur,“ sagði Dagur.

Hann var spurður hvort þetta væri mest spennandi leikur sem hann hefði upplifað á ferlinum.

Sem betur fer hef ég upplifað marga hápunkta á mínum ferli en þessi leikur mun bætast í hóp þeirra sem ég mun aldrei gleyma,“ svaraði Dagur.

Þú ert aldrei með flókið plan

Spurður um upplegg hans á lokamínútum þegar Króatar tryggðu sér sigurinn á ævintýralegan hátt með því að skora fimm síðustu mörkin sagði Dagur:

Þú ert aldrei með flókið plan fyrir svona stöður. Þú reynir bara að skora mark og gætir þess svo að skila þér strax í vörnina. Þetta féll með okkur í lokin, við styrktumst við hvert mark, og það má alveg kalla það þjófnað þegar þú vinnur leik á þennan hátt.“

Um leik Frakka og Egypta sem nú stendur yfir svaraði hann:

Frakkar eru sigurstranglegri en maður veit aldrei hvað gerist, við sjáum til,“ en Króatar mæta sigurliðinu úr þeim leik í undanúrslitunum á fimmtudaginn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert