Óverðskuldaðar og kaldar kveðjur

Dagur Sigurðsson.
Dagur Sigurðsson. mbl.is/Eyþór

Við Íslendingar erum þeirrar gæfu aðnjótandi að eiga handknattleiksþjálfara sem eru í fremstu röð í heiminum.

Guðmundur Guðmundsson hefur unnið ólympíugull með Dönum og silfur með Íslandi.

Dagur Sigurðsson hefur orðið Evrópumeistari með Þjóðverjum og fengið brons á Ólympíuleikum.

Alfreð Gíslason fékk silfur á Ólympíuleikunum með Þjóðverjum síðasta sumar.

Þórir Hergeirsson er sigursælasti landsliðsþjálfari handboltasögunnar.

Dagur hefur fengið óverðskuldaðar og kaldar kveðjur frá mörgum Íslendingum eftir sigur Króata á íslenska liðinu síðasta föstudagskvöld. Meðal annars fyrir að gæta ekki að hagsmunum íslenska liðsins og vinna óþarflega stóran sigur á því!

Bakvörðinn má lesa í heild sinni í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert