Frakkar tryggðu sér undanúrslitaleik gegn Króötum á heimsmeistaramóti karla í handknattleik með því að sigra Egypta í háspennuleik í átta liða úrslitunum í Zagreb í kvöld, 34:33.
Luka Karabatic skoraði sigurmarkið frá miðju á lokasekúndu leiksins, eftir að Egyptar höfðu jafnað og framlenging blasti við.
Viðureign liðanna fer fram í Zagreb á fimmtudagskvöldið.
Fyrri hálfleikurinn var lengst af jafn, Frakkar oftar með yfirhöndina. Staðan var 14:14 þegar lítið var eftir en þá skoruðu Frakkarnir fjögur síðustu mörk hálfleiksins og voru með forystu að honum loknum, 18:14.
Frakkar bættu við marki, 19:14, og virtust vera að stinga af en Egyptar lögðu ekki árar í bát og jöfnuðu metin úr 23:19 í 24:24.
Dika Mem kom Frökkum í 32:30 þegar þrjár mínútur voru eftir af leiknum. Ahmed Hesham svaraði fyrir Egypta, 32:31, og jafnaði svo í 32:32 þegar 65 sekúndur lifðu leiks.
Nedim Remilli skoraði fyrir Frakka hálfri mínútu fyrir leikslok en Yahia Omar jafnaði fyrir Egypta, 33:33, og virtist hafa tryggt þeim framlengingu.
Frakkar brunuðu upp og Karabatic skoraði sigurmarkið þegar 3/10 úr sekúndu voru eftir.
Dika Mem skoraði sex mörk fyrir Frakka, Nedim Remilli sex og Aymeric Minne fimm.
Ahmed Hesham skoraði átta mörk fyrir Egypta, Yahia Omar sex og Seif Elderaa fimm.