Portúgal sló lærisveina Alfreðs út

Alfreð Gíslason ósáttur á hliðarlínunni í kvöld.
Alfreð Gíslason ósáttur á hliðarlínunni í kvöld. AFP/Stian Lysberg Solum

Portúgal tryggði sér í kvöld sæti í undanúrslitum HM karla í handbolta með því að leggja lærisveina Alfreðs Gíslasonar í Þýskalandi að velli, 31:30, eftir framlengdan leik í Ósló í Noregi.

Portúgal byrjaði leikinn af krafti og komst snemma í 5:1. Alfreð tók þá leikhlé og ekki leið á löngu þar til spilamennskan batnaði og minnkaði muninn niður í aðeins eitt mark í stöðunni 7:6.

Portúgalska liðið náði hins vegar aftur stjórn á leiknum og var fjórum mörkum yfir, 13:9, í hálfleik.

Í síðari hálfleik hélt Portúgal nokkurra marka forystu til að byrja með en eftir að hafa komist í 18:16 brást Þýskaland við með því að skora fjögur mörk í röð og komast þannig yfir í fyrsta sinn í leiknum. Staðan var þá orðin 18:20.

Jafnræði var með liðunum eftir það þar sem Þjóðverjar komust nokkrum sinnum einu marki yfir en Portúgalar jöfnuðu alltaf metin jafnharðan.

Það kom því ekki mikið á óvart að staðan var jöfn, 26:26, þegar síðari hálfleikur var á enda. Því þurfti að grípa til framlengingar.

Victor Iturriza skorar fyrir Portúgal í kvöld.
Victor Iturriza skorar fyrir Portúgal í kvöld. AFP/Stian Lysberg Solum

Áfram var allt í járnum í framlengingunni en var það Portúgal sem var einu marki yfir, 29:28, að loknum fyrri hálfleik í henni.

Eftir mikla dramatík í síðari hálfleik skoraði Martim Costa sigurmarkið fyrir Portúgal þegar nokkrar sekúndur voru eftir af leiknum og reyndist tíminn of knappur fyrir Þýskaland til þess að halda í eina lokasókn og freista þess að jafna metin einu sinni enn.

Er þetta í fyrsta sinn sem Portúgal kemst í undanúrslit á heimsmeistaramóti.

Francisco Costa var markahæstur hjá Portúgal með átta mörk. Victor Iturriza bætti við sjö mörkum.

Lukas Zerbe var markahæstur í leiknum með níu mörk fyrir Þýskaland. Juri Knorr bætti við sjö mörkum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert