Myndin sýnir hvernig nokkur sekúndubrot skildu að

Frakkar fagna á meðan Egyptar trúa vart óláni sínu.
Frakkar fagna á meðan Egyptar trúa vart óláni sínu. AFP/Anne-Christine Poujoulat

Luka Karabatic skoraði sigurmark Frakklands gegn Egyptalandi á allra síðustu andartökum leiks liðanna í átta liða úrslitum HM karla í handbolta í gærkvöldi.

Í handbolta verður boltinn að vera kominn inn fyrir marklínuna þegar leikklukkan gellur, öfugt við til að mynda í körfubolta þegar tímasetning skotsins gildir.

Í gærkvöldi var staðan jöfn, 33:33, þegar ein sekúnda lifði leiks. Frakkar tóku eldsnögga miðju og Karabatic þrumaði boltanum í netið af miðju áður en markvörður Egypta komst í markið.

Dæmdu ekki mark í fyrstu

Upphaflega dæmdu dómararnir ekki mark en eftir að hafa skoðað myndbandsupptöku kom í ljós að markið var skorað áður en leiktíminn var úti. Munaði einungis fáeinum sekúndubrotum á því að markið fengi ekki að standa.

Egyptaland var því nokkrum sekúndubrotum frá því að tryggja sér framlengingu en sat þess í stað eftir með sárt ennið.

Skjáskot af myndinni sem dómararnir studdust við til þess að ákvarða hvort um mark hafi verið að ræða má sjá hér:

Boltinn kominn inn fyrir línuna þegar nokkur sekúndubrot eru eftir …
Boltinn kominn inn fyrir línuna þegar nokkur sekúndubrot eru eftir af leiknum. Ljósmynd/Skjáskot
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert