Ólöglegt mark sló Alfreð úr leik (myndskeið)

Alfreð Gíslason og lærisveinar hans féllu úr leik í gærkvöldi.
Alfreð Gíslason og lærisveinar hans féllu úr leik í gærkvöldi. AFP/Henning Bagger

Martim Costa skoraði sigurmark Portúgals í sigrinum á Þýskalandi, 31:30, í átta liða úrslitum HM karla í handbolta í gærkvöldi. Kom markið í blálok framlengingarinnar og höfðu Þjóðverjar engan tíma til að jafna metin.

Sérfræðingar TV2 í Danmörku rýndu í markið eftir leik og komust fljótlega að því að það ætti ekki að standa þar sem Costa tók of mörg skref. Norskir dómarar leiksins sáu hins vegar ekkert athugavert við markið.

„Það fer ekki á milli mála að hann tók of mörg skref. Það er pirrandi að norsku dómararnir tóku ekki eftir þessu og máttu ekki skoða þetta á myndbandi,“ sagði Claus Jakobsen á dönsku rásinni.

Markið má sjá hér fyrir neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert