Gamla ljósmyndin: Vonbrigði

Íþrótta­deild Morg­un­blaðsins og mbl.is held­ur áfram að gramsa í mynda­safni Morg­un­blaðsins og birta á mbl.is á laug­ar­dög­um. 

Íslensk­ir landsliðsmenn í hand­knatt­leik hafa upp­lifað sæta sigra og sár von­brigði á stór­mót­um í gegn­um tíðina. Þjóðarsál­in hef­ur upp­lifað slík­ar til­finn­ing­ar með þeim enda hef­ur ástar­sam­band þjóðar­inn­ar og hand­bolta­landsliðsins staðið í meira en hálfa öld. Landsliðsmönn­um er hampað þegar vel geng­ur og gagn­rýnd­ir þegar illa geng­ur. 

Ekki er alltaf nóg að vinna alla leik­ina í riðlin­um á HM til að ná í verðlaun. Það sást núna á HM í Za­greb og það sást einnig á HM í Svíþjóð árið 2011. Þá vann Ísland alla fimm leik­ina í riðlin­um en mætti ógn­ar­sterk­um hand­boltaþjóðum í mill­iriðli: Þýskalandi, Spáni og Frakklandi. Þeir leik­ir töpuðust all­ir og einnig leik­ur­inn gegn Króa­tíu um 5. sætið. 

Meðfylgj­andi mynd tók Golli þegar niðurstaðan lá fyr­ir í leik Íslands og Spán­ar í mill­iriðlin­um í Jön­k­öp­ing á HM 2011 þar sem Spánn vann 32:24. Spánn náði af­ger­andi for­skoti í fyrri hálfleik og ágæt­ur leik­ur ís­lenska liðsins í síðari hálfleik var ekki nóg til að eiga mögu­leika á sigri. 

Á mynd­inni má sjá marka­maskín­una Guðjón Val Sig­urðsson miður sín að leikn­um lokn­um. Mynd­in lýs­ir því vel hversu mikl­ar til­finn­ing­ar eru í spil­inu í hæsta gæðaflokki af­reksíþrótta.

Guðjón Val­ur fór í aðgerð á hné snemma árs 2010 eða skömmu eft­ir að Ísland fékk bronsverðlaun á EM í Aust­ur­ríki. Hún heppnaðist ekki sem skyldi og önn­ur aðgerð tók við hjá Guðjóni í maí. Mik­il óvissa ríkti því um hvort hann gæti leikið á HM 2011. 1. des­em­ber 2010 lék hann á ný með Rhein Neckar Löwen. Þegar að HM 2011 kom hélt Guðjón þó ekki aft­ur af sér frek­ar en fyrri dag­inn og lék 60 mín­út­ur trekk í trekk í mót­inu. Hann var næst­marka­hæsti leikmaður Íslands á HM 2011 með 47 mörk og 68% skot­nýt­ingu. 

Guðjón Val­ur upp­lifði miklu fleira en von­brigði á stór­mót­um og lék þríveg­is um verðlaun með ís­lenska landsliðinu. Á EM 2002, á ÓL 2008 og EM 2010. 

Guðjón Val­ur lék 364 A-lands­leiki og skoraði 1.875 mörk. Marka­skor sem mun enn vera heims­met hjá leik­manni í karla­landsliði. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert