Sló markamet sem sett var á Íslandi

Mathias Gidsel er engum líkur.
Mathias Gidsel er engum líkur. AFP/Jonathan Nackstrand

Mat­hi­as Gidsel, stór­skytta heims­meist­ara Dan­merk­ur, sló í gær marka­met á heims­meist­ara­móti þegar hann skoraði tíu mörk í sigri liðsins á Króa­tíu í úr­slita­leik HM 2025 í Nor­egi í gær­kvöldi.

Gidsel skoraði alls 74 mörk, þar af aðeins eitt úr ví­tak­asti, og sló þannig 30 ára gam­alt marka­met suðurkór­esku stór­skytt­unn­ar Yoon Kyung-Shin, sem sá síðar­nefndi setti á HM 1995 á Íslandi.

Gidsel skoraði 73 mörk úr opn­um leik en Yoon skoraði 70 mörk úr opn­um leik á HM á Íslandi.

Gidsel hef­ur hins veg­ar verk að vinna ætli hann sér að slá marka­met Kirils Laz­arovs að meðtöld­um mörk­um úr víta­köst­um. Laz­arov á nefni­lega metið yfir flest mörk á einu heims­meist­ara­móti en það setti hann á HM 2009.

Laz­arov skoraði þá alls 92 mörk. Yoon skoraði alls 82 mörk að meðtöld­um mörk­um úr víta­köst­um á HM 1995 á Íslandi og er enn í öðru sæti yfir flest mörk á heims­meist­ara­móti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert