Golden State Warriors hefur ákveðið að leysa leikstjórnandann þrautreynda Chris Paul undan samningi.
The Athletic greinir frá því að Paul, sem er 39 ára gamall, hafði möguleika á því að skrifa undir eins árs framlengingu á samningi sínum sem hefði fært honum 30 milljónir bandaríkjadala en er nú laus allra mála.
Hann lék aðeins eitt tímabil með Golden State og hefur á ferlinum leikið með Phoenix Suns, Oklahoma City Thunder, Houston Rockets, Los Angeles Clippers og New Orleans / Oklahoma City Hornets.
Paul hefur tólf sinnum verið valinn til þess að taka þátt í stjörnuleik NBA en hefur aldrei auðnast að vinna deildina á ferli sínum.