Bandaríski körfuknattleiksmaðurinn Klay Thompson er að ganga til liðs við silfurlið Dallas Mavericks.
Thompson yfirgaf Golden State Warriors fyrr í sumar eftir að hafa leikið allan ferilinn, eða 13 ár, hjá félaginu.
Á sínum tíma með Golden State var hann lykilmaður og vann NBA-deildina fjórum sinnum.
Bandarískir miðlar greina hins vegar frá því að hann sé á leiðinni til Dallas Mavericks sem hafnaði í öðru sæti NBA-deildarinnar eftir tap fyrir Boston Celtics í úrslitaeinvíginu.