Íslenska U16 ára landslið drengja vann góðan sigur á sterkum jafnöldrum frá Svíþjóð, 69:62, í öðrum leik liðsins á Norðurlandamótinu í körfubolta í Finnlandi í dag.
Ísland tapaði fyrsta leiknum gegn Noregi en svaraði því í dag. Á morgun mætir liðið Eistlandi í þriðja leiknum af fimm.
Ísland var tíu stigum yfir í hálfleik, 32:23, og í þeim seinni héldu Íslendingarnir út.
Jakob Leifsson skoraði 18 stig, tók 12 fráköst og gaf átta stoðsendingar í liði Íslands. Róbert Óskarsson skoraði þá 15 stig, tók fjögur fráköst og gaf þrjár stoðsendingar.