Penninn á lofti á Akureyri

Daníel Andri Halldórsson mun halda áfram þjálfun kvennaliðs Þórs.
Daníel Andri Halldórsson mun halda áfram þjálfun kvennaliðs Þórs. Ljósmynd/Þór Akureyri

Daníel Andri Halldórsson, þjálfari kvennaliðs Þórs á Akureyri í körfuknattleik, hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við félagið.

Daníel Andri hefur þjálfað Þór undanfarin þrjú ár með góðum árangri en liðið festi sig í sessi í úrvalsdeildinni á síðasta tímabili með sannfærandi hætti.

Við sama tilefni skrifuðu þrír leikmenn liðsins undir nýja tveggja ára samninga. Þær eru Emma Karólína Snæbjarnardóttir, Valborg Eva Bragadóttir og Katrín Eva Óladóttir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert