Úrvalsdeild kvenna í körfuknattleik hefst í kvöld á þremur leikjum.
Silfurlið Njarðvíkur fær Grindavík í heimsókn, Valur mætir Þór Akureyri, sem vann á dögunum meistarakeppni KKÍ, og Haukar taka á móti nýliðum Hamars/Þórs.
Á morgun mæta Íslands- og bikarmeistarar Keflavíkur til leiks á útivelli gegn Stjörnunni og Aþena og Tindastóll mætast í nýliðaslag.
Í ár eru þrír nýliðar þar sem að Fjölnir, sem hélt sér uppi í fyrra, verður ekki með lið í deildinni. Hamar/Þór kemur í staðinn.