Körfuknattleiksdeild Keflavíkur hefur gengið frá samningi við Katrinu Trankale, 22 ára leikmanni frá Lettlandi.
Mun hún því leika með kvennaliði félagsins það sem eftir lifir leiktíðar.
Keflavík hefur farið illa af stað á tímabilinu. Liðið tapaði óvænt fyrir Þór frá Akureyri í meistarakeppni KKÍ og tapaði síðan fyrir Stjörnunni í 1. umferð úrvalsdeildarinnar í vikunni.