Í sjúkrabíl af Ásvöllum eftir höfuðhögg

Ajulu Obur Thatha í leiknum í kvöld.
Ajulu Obur Thatha í leiknum í kvöld. mbl.is/Eyþór

Óhugnanlegt atvik átti sér stað undir lok leiks Hauka og Aþenu í úrvalsdeild kvenna í körfuknattleik í kvöld þegar Ajulu Obur Thatha, leikmaður Aþenu, fékk högg á höfuðið og var að lokum flutt í sjúkrabíl á sjúkrahús.

Thatha, sem var stigahæst leikmanna Aþenu í leiknum í Ólafssal að Ásvöllum, var studd af velli eftir höfuðhöggið en stuttu síðar var kallað hástöfum: „Er læknir í húsinu?“

Hún hlaut í kjölfarið aðhlynningu við varamannabekk Aþenu og var þá með meðvitund.

Sjúkraflutningamenn mættu svo á vettvang, huguðu enn frekar að Thatha og báru hana svo með sjúkrabörum í sjúkrabíl við lófatak viðstaddra í Ólafssal.

Mun Thatha gangast undir frekari skoðanir á sjúkrahúsi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert