Verður frá keppni næstu tvo mánuði

Ásta Júlía Grímsdóttir verður frá keppni næstu mánuði.
Ásta Júlía Grímsdóttir verður frá keppni næstu mánuði. Eyþór Árnason

Körfuknattleikskonan Ásta Júlía Grímsdóttir leikmaður Vals verður frá keppni næstu tvo mánuðina vegna meiðsla. Ásta reif liðþófa í hné á dögunum og þarf á aðgerð að halda.

Hún staðfesti tíðindin við mbl.is fyrir æfingu landsliðsins í Ólafssal á Ásvöllum í kvöld. Ásta var í hópnum sem mætir Slóvakíu á fimmtudag og Rúmeníu á sunnudag í undankeppni EM, en báðir leikir fara fram í Ólafssal.

Ásta dró sig úr hópnum vegna meiðslanna, en var mætt á æfingu liðsins í kvöld, en hún tók ekki þátt í æfingunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert