Ótrúlegar lokasekúndur á Álftanesi

Andrew Jones.
Andrew Jones. Ljósmynd/Egill Bjarni Friðjónsson

Andrew Jones tryggði Álftanes dýrmætan sigur þegar liðið tók á móti Grindavík í 7. umferð úrvalsdeildar karla í körfuknattleik á Álftanesi í kvöld. Leiknum lauk með tveggja stiga sigri Álftanes, 90:88, en Jones kom Álftanes yfir í leiknum þegar rúm sekúnda var til leiksloka.

Með sigrinum lyftir Álftanes sér upp í 6. sæti deildarinnar í 8 stig en þetta var fjórði sigur liðsins í röð. Grindavík er einnig með 8 stig í 4. sætinu.

Álftanes var með frumkvæðið í fyrra hálfleik og var staðan 30:20, Álftanes í vil, að fyrsta leikhluta loknum. Álftanes leiddi með 9 stigum í hálfleik, 54:45, og Álftnesingar leiddu einnig að þriðja leikhluta loknum, 73:68.

Fjórði leikhluti var æsispennandi en Grindavík skoraði fyrstu 9 stig leikhlutans og komust í 77:73. Liðin skiptust á að skora eftir þetta og Grindavík leiddi 88:87 þegar hálf mínúta var til leiksloka. Jones kom svo Álftanesi yfir þegar rúm sekúnda var eftir og Dimitrios Klonaras innsiglaði sigurinn af vítalínunni á síðustu sekúndunni.

David Okeke var stigahæstur hjá Álftanesi með 20 stig, átta fráköst og eina stoðsendingu og Jones skoraði 19 stig. Daniel Mortensen var stigahæstur hjá Grindavík með 25 stig, fimm fráköst og eina stoðsendingu.

Álftanes - Grindavík 90:88

Álftanes, Bónus deild karla, 14. nóvember 2024.

Gangur leiksins:: 4:2, 17:7, 24:17, 30:20, 34:27, 39:35, 49:38, 54:45, 62:49, 67:58, 69:61, 73:68, 73:75, 81:82, 83:86, 90:88.

Álftanes: David Okeke 20/8 fráköst, Andrew Jones 19/7 fráköst/5 stoðsendingar, Haukur Helgi Briem Pálsson 15, Dúi Þór Jónsson 15, Hörður Axel Vilhjálmsson 9/5 stoðsendingar, Viktor Máni Steffensen 6, Dimitrios Klonaras 6.

Fráköst: 20 í vörn, 4 í sókn.

Grindavík: Daniel Mortensen 25/5 fráköst, Deandre Donte Kane 17/8 fráköst/6 stoðsendingar, Devon Tomas 15/8 fráköst/5 stoðsendingar, Jason Tyler Gigliotti 13/6 fráköst, Ólafur Ólafsson 10, Valur Orri Valsson 8/5 stoðsendingar.

Fráköst: 26 í vörn, 6 í sókn.

Dómarar: .

Áhorfendur: 529

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert