Formaðurinn í leikmannahópnum

Kristinn Jónasson, formaður körfuknattleiksdeildar Hauka, er í leikmannahópi liðsins á …
Kristinn Jónasson, formaður körfuknattleiksdeildar Hauka, er í leikmannahópi liðsins á Egilsstöðum í kvöld. Ljósmynd/Haukar

Kristinn Jónasson, formaður körfuknattleiksdeildar Hauka, er í leikmannahópi liðsins í leik gegn Hetti í 12. umferð úrvalsdeildar karla sem er nýhafinn á Egilsstöðum.

Kristinn, sem fagnar fertugsafmæli sínu í næstu viku, lagði skóna á hilluna fyrir tæpum sex árum, vorið 2019, en gæti komið við sögu í kvöld.

Leikur Hattar og Haukar hófst klukkan 19 í kvöld og er mikilvægur í fallbaráttunni þar sem Höttur er í tíunda sæti með átta stig og Haukar á botninum með fjögur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert