Seinkuðu leikjunum frestað

Hamar getur ekki ferðast í Grafarvog.
Hamar getur ekki ferðast í Grafarvog. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tveimur leikjum í 1. deild karla í körfuknattleik sem fyrr í dag var seinkað um 45 mínútur hefur nú verið frestað þar sem Hellisheiðin er enn lokuð.

Leikirnir sem um ræðir eru Fjölnir - Hamar sem átti fara fram í Grafarvogi og Selfoss – KV sem átti að fara fram á Selfossi.

Upphaflega áttu þeir að hefjast klukkan 19.15, var svo seinkað til klukkan 20 en nú er ljóst að leikirnir fara ekki fram í kvöld.

Mótanefnd KKÍ vinnur nú að því að finna leikjunum tveimur nýja leiktíma.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert