KR í úrslit eftir spennuleik

Hilmar Smári Henningsson og Veigar Áki Hlynsson eigast við í …
Hilmar Smári Henningsson og Veigar Áki Hlynsson eigast við í Smáranum í dag. mbl.is/Eyþór Árnason

KR og Stjarnan áttust við í fyrri undanúrslitaleik kvöldsins í bikarkeppni karla í körfubolta í Smáranum í Kópavogi og lauk leiknum með sigri Vesturbæinga, 94:91.  KR-ingar mæta annað hvort Keflavík eða Val í úrslitaleik á laugardaginn í Smáranum en liðin mætast síðar í kvöld.

Fyrri hálfleikur var gríðarlega jafn og skiptust liðin á að taka forystuna þó Stjarnan hafi haft hana í lengri tíma af hálfleiknum. Stjarnan náði mest 7 stiga forskoti í fyrsta leikhlutanum í stöðunni 20:13 en KR-ingum tókst að jafna leikinn rétt áður en fyrsti leikhlutinn kláraðist með þriggja stiga körfu frá Orra Hilmarssyni. 

Staðan eftir fyrsta leikhlutann jöfn 25:25. 

Í öðrum leikhluta var jafnt á öllum tölum og munurinn milli liðanna aldrei meira en 4 stig og oftast bara tvö stig. KR-ingar voru yfir eftir tæplega 18 mínútur í stöðunni 45:41 en Stjörnunni tókst að ná forystu í stöðunni 47:45 fyrir Stjörnuna. 

Lokamínúta leikhlutans var ansi spennandi en KR jafnaði í stöðunni 47:47 og komust síðan yfir 50:47 með þriggja stiga körfu frá Þorvaldi Orra Árnasyni. Stjarnan jafnaði leikinn strax í 50:50 með þriggja stiga körfu frá Hilmari Smára Henningssyni. 

KR-ingum tókst að komast 52:50 yfir með tveimur vítaskotum frá Þorvaldi Árna en þá kom þriggja stiga karfa frá Jase Febres og Stjarnan var komin yfir 53:52 sem voru hálfleikstölur.

Mikill hraði í leiknum

KR-ingar byrjuðu þriðja leikhlutann vel og náðu 55:53 forskot. Gríðarlegur hraði var í leikhlutanum og ljóst að hvorugt liðið ætlaði að lúta í lægri hlut í þessum leik. 

Leikhlutinn var ansi lýkur öðrum leikhluta þar sem liðin skiptust á að vera yfir. Kr-ingar náðu mesta forskotinu í stöðunni 65:60 en Stjörnumenn söxuðu það niður og komust yfir í stöðunni 67:66. Fór svo að leikhlutinn endaði þannig að KR-ingar leiddu með einu stigi fyrir fjórða leikhlutann. Staðan eftir þriðja leikhluta 73:72.

Fjórði leikhluti var ekki fyrir viðkvæma. Ægir Þór Steinarsson fyrirliði Stjörnunnar byrjaði leikhlutann á að koma þeim 74:73 yfir. KR-ingar sættu sig ekki við það og komust yfir í stöðunni 78:76.

Spennan síðustu mínútur leiksins voru rosalegar. KR-ingar náðu 4 stiga forskoti í stöðunni 91:87. Stjörnunni tókst að minnka muninn í 92:91 og vinna síðan boltann þegar um 15 sekúndur voru eftir af leiknum. Það endaði með því að Ægir Þór tók þriggja stiga skot en klikkaði. 

KR-ingar fengu því lokasóknina og létu tímann líða. KR er því á leið í bikarúrslitaleikinn gegn annað hvort Val eða Keflavík á laugardag. 

Þorvaldur Orri Árnason skoraði 22 stig fyrir KR og Þórir Guðmundur Þorbjarnarson tók 7 fráköst.  Jase Febres skoraði 26 stig og tók 13 fráköst fyrir Stjörnuna.

Lýsing uppfærist sjálfkrafa

Allar lýsingar í beinni

Aðrir virkir leikir

Keflavík 58:84 Valur opna
99. mín. skorar

Leiklýsing

KR 94:91 Stjarnan opna loka
99. mín. skorar
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert