Látinn fara frá Njarðvík

Evans Ganapamo skýtur.
Evans Ganapamo skýtur. Ljósmynd/Skúli B. Sigurðsson

Körfuknattleiksmaðurinn Evans Ganapamo, sem er landsliðsmaður Mið-Afr­íku­lýðveld­is­ins, er farinn frá Njarðvík en þetta staðfesti Rúnar Ingi Erlingsson þjálfari liðsins í dag. 

Rúnar sagði frá þessu í hlaðvarpinu Endalínan

Evans gekk í raðir Njarðvíkur í desember á síðasta ári og spilaði alls tólf leiki. Hann var að meðaltali með 16 stig, fjögur fráköst og eina stoðsendingu í leik. 

Rúnar Ingi sagði jafnframt að ákvörðunin hafi verið sameiginleg. 

Njarðvík mætir Stjörnunni í lokaumferð deildarkeppninnar í Garðabænum næsta miðvikudagskvöld.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert