Hvert fer gríska undrið?

Giannis Antetokounmpo verður ólíkega áfram hjá Milwaukee Bucks.
Giannis Antetokounmpo verður ólíkega áfram hjá Milwaukee Bucks. AFP/John Fisher

Grikk­inn Gi­ann­is An­tet­okoun­mpo, einn besti leikmaður banda­rísku NBA-deild­ar­inn­ar í körfu­bolta, er lík­lega á för­um frá Milwaukee Bucks í sum­ar. 

Milwaukee datt út fyr­ir Indi­ana Pacers í átta liða úr­slit­um Aust­ur­deild­ar­inn­ar eft­ir 4:1-tap en liðið hef­ur valdið mikl­um von­brigðum frá því það vann NBA-deild­ina árið 2021. Síðan þá hef­ur liðið aðeins unnið eina rimmu í úr­slita­keppn­inni og misst lyk­il­menn­ina Khris Middlet­on og Jrue Holi­day. 

Gi­ann­is er sagður vera kom­inn með nóg í Milwaukee og þykir lík­legra með deg­in­um að hann fari í annað lið. 

Í The Zach Lowe Show, sem fjall­ar um körfu­bolta, var talað um að stærri borg­ir Banda­ríkj­anna heilli hann. 

Ekki er vitað hvort það væri New York, Los Ang­eles, Chicago, Hou­st­on eða jafn­vel Miami vegna tæki­fær­ana sem þar eru, þó borg­in sé ekki sér­lega stór. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert