„Drullusama hvar við vinnum titilinn“

Emil Barja ræðir málin við leikmenn sína í kvöld.
Emil Barja ræðir málin við leikmenn sína í kvöld. mbl.is/Eyþór

Hauk­ar voru ein­um sigri frá því að fagna Íslands­meist­ara­titli kvenna í körfu­bolta fyr­ir leik­inn gegn Njarðvík á heima­velli sín­um, Ólafssal á Ásvöll­um, í kvöld. Gerðu marg­ir ráð fyr­ir því að Hauk­ar myndu klára ein­vígið og fagna titl­in­um í lok leiks.

Það tókst ekki og knúðu Njarðvík­ing­ar fram fjórða leik­inn á heima­velli sín­um í Njarðvík næsta laug­ar­dag.

Emil Bar­ja þjálf­ari Hauka var eðli­lega svekkt­ur með úr­slit­in þegar mbl.is ræddi við hann strax eft­ir leik.

„Njarðvík­urliðið var bara virki­lega gott í kvöld. Þær mættu hérna fersk­ar inn í leik­inn og settu risa­stór skot strax í upp­hafi. Mikið hrós til Njarðvík­ur,“ sagði Emil um Njarðvík­urliðið.

Hvað er það helst sem kem­ur í veg fyr­ir að þið vinnið og fagnið titl­in­um hér í kvöld?

„Við viss­um það al­veg fyr­ir leik að þær myndu ekki koma hérna og gefa okk­ur þetta. Við bjugg­umst við al­vöru leik og að Njarðvík myndi gefa allt í þenn­an leik. Þær gerðu það og unnu.“

Má segja að leik­ur­inn hafi að ein­hverju leyti tap­ast í fyrri hálfleik þegar Njarðvík nær 20 stiga for­skoti og Hauk­ar þurfa að setja alla sína orku í að vinna upp þann mun. Var of mik­il brekka að koma til baka og halda for­skot­inu þegar þið komust yfir þarna í lok­in?

„Já kannski. Sér­stak­lega þegar við miss­um Diamond Batt­les úr húsi. Þá erum við ein­um leik­manni færri í róter­ing­unni. Hún var líka búin að vera frá­bær í leikn­um fram að þessu. Okk­ar aðal­skytta fram að þessu og fúlt að missa hana út af.“

Hefði þessi leik­ur tap­ast ef Diamond hefði spilað út leik­inn?

„Auðvitað veit maður það ekk­ert en ég trúi því að við hefðum unnið með hana með okk­ur út leik­inn. Það mun­ar svaka­lega um Kan­ann okk­ar sem er hér sem at­vinnumaður. Þetta var ótrú­lega ósann­gjarnt að missa hana hér út fyr­ir eitt­hvað sem mér fannst ekki rétt.“

Næsti leik­ur er á laug­ar­dag­inn. Hauk­ar eru ennþá í bíl­stjóra­sæt­inu í þess­ari viður­eign. Hauk­ar ætla sér þá vænt­an­lega að vinna titil­inn í Njarðvík, ekki satt?

„Okk­ur er drullu­sama hvar við vinn­um titil­inn. Við ætl­um að vinna þenn­an titil og við horf­um bara á þenn­an leik aft­ur og finn­um hvað hefði mátt bet­ur fara og mæt­um brjálaðar í næsta leik.“

Úr því sem komið er þá viltu vænt­an­lega klára þetta í Njarðvík?

„Já, já, við ætl­um að klára þetta í Njarðvík í næsta leik. Við erum ennþá með sama plan og fyr­ir þenn­an leik sem er að vinna. Við höf­um unnið alla leiki sem við höf­um spilað í Icem­ar höll­inni og við get­um al­veg gert það aft­ur,“ sagði Emil í sam­tali við mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert