Þór dregur sig úr efstu deild

Þórsliðið hefur dregið sig úr keppni í efstu deild.
Þórsliðið hefur dregið sig úr keppni í efstu deild. mbl.is/Karítas

Þór Ak­ur­eyri hef­ur ákveðið að draga sitt lið úr keppni í úr­vals­deild kvenna í körfuknatt­leik í haust. 

Þór mun frek­ar spila í 1. deild­inni og seg­ir í til­kynn­ingu frá fé­lag­inu að það telji skyn­sam­leg­ast að færa sig niður í 1. deild­ina þar sem „betri tæki­færi gef­ast til þess að gefa ung­um og efni­leg­um leik­mönn­um tæki­færi.“

Þór hafnaði í þriðja sæti úr­vals­deild­ar­inn­ar í vor og mætti Val í um­spili um sæti í undanúr­slit­un­um en datt út, 3:1.

Yf­ir­lýs­ing Þórs í heild sinni: 

Kæru Þórsar­ar og körfu­bolta­fjöl­skylda Íslands. Okk­ur í stjórn KKD Þórs þykir erfitt að
til­kynna ykk­ur um að Þór Ak­ur­eyri hef­ur ákveðið að draga lið sitt úr keppni í Bón­us­deild
(úr­vals­deild) kvenna og skrá liðið þess í stað í 1.deild á kom­andi vetri.


Ný­verið var til­kynnt um ráðningu á tveim­ur gíf­ur­lega fær­um þjálf­ur­um fyr­ir kvennaliðið með það í huga að byggja upp kvennalið og yngri flokka okk­ar til framtíðar.


Með akkúrat þessi sjón­ar­mið, upp­bygg­ingu og framtíðar­hugs­un telj­um við hag kvennaliðs okk­ar bet­ur borgið í 1.deild þar sem betri tæki­færi gef­ast til þess að gefa ung­um og efni­leg­um leik­mönn­um tæki­færi.

Við vilj­um nota tæki­færið og skora á ung­ar stelp­ur sem vilja fá mín­út­ur á meist­ara­flokks getu­stigi að koma norður, þrosk­ast og efl­ast und­ir stjórn færra þjálf­ara í fé­lagi með góða um­gjörð og skýra framtíðar hugs­un.

Þór, í hvaða íþrótt sem um ræðir, er og verður alltaf fé­lag sem bygg­ir starf sitt á mikl­um og ein­stök­um fé­lagsauði inn­an vall­ar sem utan. Okk­ur í stjórn KKD finnst ekki for­svar­an­legt að þurfa a.m.k. næstu 3-4 árin að halda úti liði sem að mestu yrði byggt á því að full­nýta út­lend­inga­kvót­ann sem leyfður er hverju sinni.

Þó vissu­lega þurfi öðru hvoru að gera und­an­tekn­ing­ar á stefn­unni, tel­ur stjórn­in að til langs tíma sé slík stefna sé ekki í anda fé­lags­ins. Tekið skal þó skýrt fram að ekki er hér um ádeilu á stefnu ann­ara fé­laga að ræða. Hver og einn verður að sníða sér stakk eft­ir vexti og marka sér sína stefnu.

Í körfu­bolta á Ak­ur­eyri fel­ast gíf­ur­leg tæki­færi og mik­il efni til bæt­ing­ar. Lyk­ill þess að svo megi verða er skyn­sam­leg­ur rekst­ur og skýr framtíðar hugs­un. Er það staðföst trú stjórn­ar KKD Þórs að með því að beina aukn­um fjár­mun­um til öfl­ugra þjálf­ar­aráðninga fyr­ir yngri flokka og meist­ara­flokka sé verið að byggja upp sterk­ari grunn sem muni von­andi verða til þess að Þór muni inn­an fárra ára orðið stórt og gild­andi fé­lag í ís­lensk­um körfu­bolta.

mbl.is

Körfubolti

Meira
L U T Mörk +/- Stig
1 Haukar 18 15 3 1585:1387 198 30
2 Njarðvík 18 13 5 1470:1384 86 26
3 Þór Ak. 18 12 6 1595:1501 94 24
4 Keflavík 18 12 6 1560:1467 93 24
5 Valur 18 8 10 1317:1343 -26 16
13.05 Haukar 92:91 Njarðvík
10.05 Njarðvík 94:78 Haukar
07.05 Haukar 93:95 Njarðvík
04.05 Njarðvík 72:90 Haukar
01.05 Haukar 86:79 Njarðvík
27.04 Njarðvík 101:89 Keflavík
26.04 Haukar 79:64 Valur
23.04 Keflavík 73:76 Njarðvík
22.04 Valur 80:82 Haukar
19.04 Haukar 101:66 Valur
19.04 Njarðvík 95:80 Keflavík
13.04 Valur 75:70 Þór Ak.
09.04 Þór Ak. 72:60 Valur
05.04 Valur 102:75 Þór Ak.
01.04 Þór Ak. 86:92 Valur
26.03 Haukar 94:68 Njarðvík
26.03 Þór Ak. 88:90 Keflavík
12.03 Haukar 97:73 Þór Ak.
12.03 Valur 80:90 Njarðvík
05.03 Njarðvík 105:96 Keflavík
05.03 Valur 77:98 Haukar
02.03 Keflavík 96:105 Haukar
02.03 Þór Ak. 84:73 Valur
26.02 Njarðvík 93:80 Þór Ak.
26.02 Keflavík 73:77 Valur
urslit.net
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert