Fimleikakonan Eyþóra Elísabet Þórsdóttir fótbrotnaði illa í slysi á æfingu og missir af Ólympíuleikunum í sumar. Eyþóra hefur tekið þátt á tvennum Ólympíuleikum.
Eyþóra á íslenska foreldra en keppir fyrir Holland en hún greindi frá því að Instagram-síðu sinni að hún hefði lent illa eftir stökk af jafnvægisslá og brotið á sér fótinn á fjórum stöðum. Ólympíuleikarnir hefjast 26. júlí og fara fram í París.
Færslu Eyþóru má sjá hér fyrir neðan.