Gullverðlaun til Úganda og ólympíumet

Joshua Cheptegei kemur brosandi í mark.
Joshua Cheptegei kemur brosandi í mark. AFP/Jewel Samad

Jos­hua Chepte­gei frá Úganda varð í kvöld ólymp­íu­meist­ari í 10.000 metra hlaupi karla í Par­ís eft­ir gríðarlega harða keppni.

Chepte­gei, sem er þre­fald­ur heims­meist­ari og hand­hafi heims­mets­ins, setti nýtt ólymp­í­met, 26:43,14 mín­út­ur, og bætti gamla metið um heil­ar 24 sek­únd­ur en Ken­en­isa Bekele hljóp á 27:07,17 mín­út­um í Pek­ing árið 2008.

Ber­i­hu Areg­awi frá Eþíóp­íu fékk silf­ur­verðlaun­in á 26:43,44 mín­út­um og Grant Fis­her frá Banda­ríkj­un­um bronsið á 26:43,46 mín­út­um. Þetta eru fyrstu verðlaun Banda­ríkj­anna í grein­inni frá ár­inu 1968.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert