Þjóðverjar skelltu Frökkum

Dennis Schroder sækir að körfu Frakka en hann lék frábærlega …
Dennis Schroder sækir að körfu Frakka en hann lék frábærlega með þýska liðinu í kvöld. AFP/Sameer Al-Doumy

Þjóðverj­ar gerðu sér lítið fyr­ir og unnu frek­ar óvænt­an en mjög ör­ugg­an sig­ur á Frökk­um í körfuknatt­leikskeppni karla á Ólymp­íu­leik­un­um í Par­ís í kvöld, 85:71.

Þar með unnu Þjóðverj­ar B-riðil­inn með fullu húsi, sex stig­um. Frakk­ar, sem einnig voru komn­ir áfram fyr­ir leik­inn, fengu 4 stig, Bras­il­íu­menn tvö og Jap­an­ar ekk­ert.

Sig­ur­inn var enn ör­ugg­ari en loka­töl­urn­ar bera með sér því 69:46, Þjóðverj­um í hag, þegar fjórði leik­hluti hófst.

Denn­is Schröder og Franz Wagner voru allt í öllu hjá Þjóðverj­um og skoruðu ná­lægt tveim­ur þriðju hlut­um stig­anna, eða 26 hvor. 

Victor Wembanyama skoraði 14 stig og tók 12 frá­köst fyr­ir Frakka.

Riðlakeppn­inni lýk­ur á morg­un þegar lokaum­ferð C-riðils­ins er spiluð en þar fara Banda­rík­in áfram og annaðhvort Serbía eða Suður-Súd­an, eða jafn­vel bæði.

Þýska­land, Frakk­land og Bras­il­ía fara öll áfram úr B-riðlin­um og þá eru Kan­ada og Ástr­al­ía kom­in áfram úr A-riðli en Grikk­ir þurfa að bíða og sjá hvort það verði þeir eða þriðja lið C-riðils sem hrepp­ir síðasta sætið í átta liða úr­slit­un­um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert