Beatrice Chebet frá Keníu bar sigur úr býtum í 5.000 metra hlaupi kvenna á Ólympíuleikunum í París í kvöld og tryggði sér gullverðlaun, sem eru hennar fyrstu verðlaun á Ólympíuleikum.
Chebet kom fyrst í mark á 14:28,56 mínútum og hafnaði landa hennar, Faith Kipyegon, í öðru sæti.
Kipyegon hljóp á 14:29,60 mínútum og tryggði sér silfurverðlaunin. Hún er gullverðlaunahafi í 1.500 metra hlaupi á bæði leikunum í Tókýó árið 2021 og Ríó 2016.
Þriðja varð Sifan Hassan frá Hollandi á 14:30,61 mínútum.
Hassan vann til gullverðlauna í greininni í Tókýó og hlaut einnig ólympíugull í 10.000 metra hlaupi á sömu leikum.