Ólétt að verðandi ólympíumeistara á pallinum

Noémie Fox fagnar gullverðlaunum sínum í París.
Noémie Fox fagnar gullverðlaunum sínum í París. AFP/Oliver Morin

Myriam Fox-Jeru­sal­mi vann til bronsverðlauna á Ólymp­íu­leik­un­um í Atlanta 1996 í kanósvigi. Fæst­ir vissu að sú ástr­alska var ólétt þegar hún tók við medal­í­unni eft­ir keppn­ina.

Nokkr­um mánuðum síðar fæddi hún dótt­ur­ina Noémie Fox. Nú 28 árum síðar er dótt­ir­in orðin ólymp­íu­meist­ari en hún bar sig­ur úr být­um í kaj­akróðri á leik­un­um í Par­ís í ár.

„Þetta er í blóðinu. Litla baun­in í mag­an­um á verðlaunap­all­in­um er nú orðin ólymp­íu­meist­ari,“ skrifaði Fox-Jeru­sal­mi á In­sta­gram og birti mynd­skeið af verðlaun­um mæðgn­anna.

View this post on In­sta­gram

A post shared by Noémie (@_noemiefox)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert