Vann ólympíugullið ólétt

Veronica Kristiansen var komin þrjá mánuði á leið í París.
Veronica Kristiansen var komin þrjá mánuði á leið í París. AFP/Damien Meyer

Norska hand­knatt­leiks­kon­an Veronica Kristian­sen á von á sínu öðru barni með unn­usta sín­um Adam. Greindi hún frá tíðind­un­um á In­sta­gram.

Kristian­sen varð ólymp­íu­meist­ari með norska landsliðinu í Par­ís fyrr í mánuðinum, þrátt fyr­ir að vera þá kom­in þrjá mánuði á leið. Þórir Her­geirs­son er þjálf­ari norska liðsins.

Er dreng­ur vænt­an­leg­ur í janú­ar en fyr­ir eiga þau dótt­ur­ina Oli­viu.

 „Þetta kom okk­ur skemmti­lega á óvart. Okk­ur hlakk­ar til að hitta litla bróður Oli­viu í janú­ar. Von­andi get ég spilað eitt­hvað und­ir lok kom­andi tíma­bils,“ skrifaði hún m.a. á sam­fé­lags­miðil­inn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert