Bjarni Benediktsson forsætisráðherra sendi Má Gunnarssyni kveðju á samfélagsmiðlum í kvöld eftir að Már sló eigið Íslandsmet í 100 metra baksundi í S11-flokki blindra á Paralympics-leikunum í París í dag.
Már synti á 1:10,21 mínútum og hafnaði í sjöunda sæti.
Bjarni skrifaði á X-aðgangi sínum:
„Innilega til hamingju Már með glæsilegan árangur og Íslandsmet í París! Landi og þjóð til sóma.“
Innilega til hamingju Már með glæsilegan árangur og Íslandsmet í París! Landi og þjóð til sóma 🇮🇸
— Bjarni Benediktsson (@Bjarni_Ben) September 1, 2024