„Góð hvíld að fá Covid“

Í ólympíuþorpinu. Efri röð: Halla Tómasdóttir forseti, Róbert Ísak Jónsson, …
Í ólympíuþorpinu. Efri röð: Halla Tómasdóttir forseti, Róbert Ísak Jónsson, Ingeborg Eide Garðarsdóttir, Már Gunnarsson, Björn Skúlason. Neðri röð: Sonja Sigurðardóttir, Thelma Björg Björnsdóttir. Ljósmynd/ÍF

„Til­finn­ing­in er mjög góð,“ sagði Sonja Sig­urðardótt­ir eft­ir að hún tryggði sér sæti í átta manna úr­slit­um í 50 metra baksundi í S3-flokki hreyfi­hamlaðra á Para­lympics-leik­un­um í Par­ís í morg­un.

Sonja greind­ist með kór­ónu­veiruna í síðustu viku og gat af þeim sök­um ekki verið fána­beri við setn­ing­ar­at­höfn leik­anna síðastliðinn miðviku­dag eins og til stóð.

Spurð hvernig henni hafi liðið á meðan sund­inu stóð eft­ir að hafa jafnað sig eft­ir smitið sagði Sonja í sam­tali við mbl.is:

„Það er eins og ég hafi ekki verið með Covid. Það var bara góð hvíld að fá Covid held ég! En núna eft­ir sundið er ég þreytt í hönd­un­um.“

Fannstu fyr­ir ein­hverri þreytu þegar þú varst að synda?

„Nei, en fæt­urn­ir voru svo­lítið að síga niður,“ út­skýrði hún.

Ætlar að bæta tím­ann

Sonja er spennt fyr­ir úr­slita­sund­inu klukk­an 16.05 í dag, 18.05 að staðar­tíma, og sagði mark­miðin skýr:

„Ég ætla að gera mitt besta í kvöld og bæta tím­ann von­andi.“

Hún synti á 1:10,65 mín­út­um í morg­un en Íslands­met henn­ar er 1:07,82 mín­út­ur.

Hyggstu bæta tím­ann sem þú náðir í morg­un eða Íslands­metið?

„Það kem­ur í ljós!“ sagði Sonja að lok­um við mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert